07. nóvember 2007 klukkan 09:27
Jæja ætli maður verði ekki aðeins að lát aí sér heyra. Frá mér er allt flott að frétta, krílið dafnar vel og bumban stækkar og stækkar eins og þið getið séð á barnaneti
set inn nýjar bumbumyndir á föstudaginn kemur.
Brjálað að gera í skólanum og endalaus verkefni núna, allt á fullu að reyna að klára þetta fyrir 1 des þannig að maður geti einbeitt sér að því að læra fyrir þessi lokapróf og þurfi ekki að láta verkefnin trufla sig. Nóg að gera sem sagt.
Bergljót alveg að fara að koma heim, bara rúmar 3 vikur í hana, get ekki beðið eftir því að hitta hana........
Sakna þín svo mikið elsku vinkona.
En núna er ég bara í tíma....humm....spurning að fara að fylgjast með. en jæja heyrumst bleeee...
Sigurlaug Ţóra Kristjánsdóttir
24. október 2007 klukkan 22:24
Sigurlaug Ţóra Kristjánsdóttir
19. október 2007 klukkan 17:09
Sigurlaug Ţóra Kristjánsdóttir
03. október 2007 klukkan 10:40
Jæja er þá ekki kominn tími á blogg, ekki beint sú duglegasta í þeim bransa.....en þetta stefnir nú allt til bóta 
Af mér er allt gott að frétta, mikið að gerast í skólanum og álagið farið að aukast. Er að fara í dag á leikskóla að taka viðtal við sérkennara sem ég á að skila á mánudaginn. Annars er það bara same old. Sofa, skóli, læra, vinna, sofa skóli, læra vinna......
Einsinn er nú að fara að byrja á ritgerðinni sinni, er að bíða eftir bókum frá Amason, þannig að það er nóg að gera. Er að vinna hálfan daginn hjá pabba sínum og svo bara að læra....heilsufríkin Einar sem LOKSINS er hættur að reykja (komnir rúmir tveir mánuðir núna) og orðinn voðalega virkur. Byrjaður að æfa handbolta og keilu og kominn me kort í World Class já þið heyrðuð rétt, Einar Már Björnsson er orðin heilsufrík
Sem er bara að því góða.
Fór í gær með Sigrúnu og Matthildi í ungbarnasund, gvuð það er bara krúttlegt. Þau voru að fara í fyrsta skipti í kaf, og Matthildur kipti sér nú ekki mikið upp við það, eins og hún hefði ekkert gert annað, sannkallaður kafari, bara sæt. 
Jæja ætla nú a fara að fylgjast með í tímanum, heyrumst seinna 
Sigurlaug Ţóra Kristjánsdóttir
21. september 2007 klukkan 09:18
Sigurlaug Ţóra Kristjánsdóttir
19. september 2007 klukkan 16:32
Sigurlaug Ţóra Kristjánsdóttir
24. ágúst 2007 klukkan 11:56
Sigurlaug Ţóra Kristjánsdóttir
17. ágúst 2007 klukkan 10:29
Jæja þá erum við komin aftur heim á klakann eftir hreint út sagt FRÁBÆRT sumarfrí
Endalausa slökun, góðan mat og fullt af skemmtilegum hlutum gerðir. T.d. jet sky, dýragarður, Aqualand, verslað og fl. Bara gaman. Áætlað var reyndar að vera í viku en daginn áður en við áttum að fara heim fengum við þær fréttir að við gætum bætt við okkur viku á öðru hóteli ef við vildum. Þar sem ég á svo yndislega tengdaforeldra sem buðust til að bjóða okkur þessa auka viku slógum við til og fluttum okkur yfir á þetta líka geggjaða 5 stjörnu hótel. Sem var sko bara flott! Vorum eins og kóngar þessa seinni viku, bara æðislegt. Skelli inn myndum við tækifæri.
Núna er ég svo byrjuð að vinna aftur, vinn út næstu viku en þá byrjar skólinn á ný
Sigurlaug Ţóra Kristjánsdóttir
31. júlí 2007 klukkan 14:13
Sigurlaug Ţóra Kristjánsdóttir
25. júlí 2007 klukkan 08:53
Sigurlaug Ţóra Kristjánsdóttir