Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Loksins komið að fríinu :)

31. júlí 2007 klukkan 14:13
Jæja þá er loksins komið að fríini...núna sit ég hérna í vinnunni og tel niður klst í sumarfríið langþráða....3klst til stefnu Glottandi 

Núna er Einar Már loksins kominn heim, æðislegt að fá að knúsa hann endalaust, loksins. Fórum á laugardaginn í grill/partý til Önnsku og Friðgeirs á glæpanesinu.....margir skemmtilegir hlutir ræddir þar og skellt sér á trampólínið. Æðislegt að fá loksins að eyða tíma með þeim skötuhjúum aftur, búin að evra alltof lengi í burtu! Svalur Takk fyrir frábært kvöld. Hikst fyrir því....hehehehe.....Annska skilur þennan.

Annars var helgin bara róleg, sunnudeginum eytt í þynku og slakað á fyrir framan tellíið. Í gær átti svo elsku mamma mín afmæli og héldum við systkinin smá afmæli handa henni í nýju íbúðinni hans Einars bróðir, þar sem ég færði mömmu minni tvo miða á Kim Larsen tónleika í nóvember og var hún ekkert lítið ánægð með það Hlæjandi Í hádeginu fórum við Einar svo og náum okkur í gjaldeyri. Í kvöld er það svo bara dinner í Þverásnum hjá tengdó áður en haldið verður heim og pakkað niður fyrir sólina
Svalur

Heyrumst eftir viku.................. Hafið það gott um verslunarmannahelgina, og munið að gera ekki neitt sem ég myndi ekki gera Glottandi
Sigurlaug Þóra Kristjánsdóttir
Hafið það rosalega gott og skemmtið ykkur vel í sólinni :D Heyrumst þegar þið komið til baka, verð að fá að kíkja í nýju íbúðina :)

Góða ferð út!
31. júlí 2007 klukkan 17:22
HAHAHAHAHA! Hikst hikst! Já, það er ekki oft sem maður er yfirgefinn í bænum, það hefði einhver getað bitið af mér eyrað! ;) hafið það ó svo gott i útlandinu og komið fljótt og örugglega heim!
31. júlí 2007 klukkan 22:51
Góða ferð út og skemmtið ykkur ofsa vel:)
01. ágúst 2007 klukkan 09:20
hahahaha - ég dó úr hlátri í dag þegar ég fékk sms-ið! ég sem var farin að sakna ykkar svo mikið.. =)

skemmtið ykkur endalaust vel og komið heil heim - ekki lenda í neinum skógareldum.. =)
06. ágúst 2007 klukkan 23:58

Skrifa athugasemd