31. október 2006 klukkan 19:47
Jæja þá er enn ein skólavikan gengin í garð, sem þýðir að það styttist óðum í þessi blessuðu próf sem mér lýst ekkert á
Aðeins tæpar 5 vikur í fyrsta prófið.....enda er álagið í skólanum farið að aukast mjög mikið, mikið að ritgerðum, fyrirlestrum og verkefnum, sem öll taka sinn tíma. Inn á milli lærdómsins er maður svo að reyna að eiga eitthvað "líf" sem gengur sona mis vel...
Boltinn er að rúlla af stað eftir pásu....og við erum að segja það að það er ÞOLPRÓF í dag! get ekki beint sagt að ég sé spent fyrir því, þar sem að undanfarnar vikur hef ég gert fátt annað en setið á rassgatinu og lært....og svo auðvitað djammað inn á milli ;) lífsnauðsynlegt!!!
Over and Out
Sigurlaug
Sigurlaug Ţóra Kristjánsdóttir
27. október 2006 klukkan 15:48
Í nútímasamfélagi okkar er mikið talað um öryggi t.d. í umferðinni. Veit ekki með ykkur en eitthvað virðast vinir okkar í Asíu vera að miskilja þessi skilaboð? humm....


Sigurlaug Ţóra Kristjánsdóttir
25. október 2006 klukkan 16:20
SEXY?!?!?!?!?!
Sigurlaug Ţóra Kristjánsdóttir
23. október 2006 klukkan 14:37
Jæja þá er spurning að byrja að blogga á ný ;) Hvað segiði er það annars ekki málið, leyfa fólki aðeins að fylgjast með hvað maður er að bralla.
Nú er helgin liðin og var hún vægast sagt mjög róleg. Sem er ágætt þar sem að buddan leyfir ekki mikið eins og er
en mánaðarmótin nálgast þannig að það fer að lagast.
Á föstudaginn fór ég í bíó að sjá Mýrina og verð nú bara að segja að hún var þrusugóð, mæli 100% með því að allir fari og sjái hana, einnig þó þeir hafi ekki lesið bókina. Þetta er án efa ein af bestu íslensku myndunum sem búnar hafa verið til
Jæja þar sem ég er stödd í skólanum eins og er ætti maður kanski að fara að læra ;)
over and out
Sigurlaug
Sigurlaug Ţóra Kristjánsdóttir
19. september 2006 klukkan 02:31
Spruning um að prufa þetta blogg....?
Sigurlaug Ţóra Kristjánsdóttir